Um mig
Ég er dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands og hef verið deildarforseti Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar frá árinu 2026. Ég starfa einnig hjá Íslenskri erfðagreiningu og er einn stofnenda KatlaCode. Rannsóknarhópurinn minn vinnur að máltækni fyrir germönsk tungumál sem hafa lítið af stafrænum málföngum, eins og íslensku og færeysku. Við vinnum líka að verkefnum í tölvusjón fyrir náttúruvísindi (til dæmis aldursgreiningu fiska út frá kvörnum, með Hafrannsóknastofnun), klínískri gervigreind (sjálfvirkri kóðun sjúkraskráa, með Landspítala) og mannerfðafræði (erfðamengisrannsóknum á algengum sjúkdómum, hjá Íslenskri erfðagreiningu).
Ég lauk doktorsprófi frá ETH Zürich árið 2017. Rannsóknir mínar þar snerust aðallega um stærðfræðileg líkön af taugakerfum. Í kjölfarið tók ég við nýdoktorsstöðu í kerfistaugavísindum og flutti svo heim til Íslands og vann í tvö ár sem gagnasérfræðingur hjá Íslandsbanka. Árið 2020 hóf ég störf við kennslu og rannsóknir við Háskóla Íslands, þar sem ég hef meðal annars byggt upp rannsóknarhóp um mállíkön og gagnasöfn fyrir tungumál sem lítið er til af málföngum fyrir. Í hópnum eru núna þrír doktorsnemar. Ég var einn stofnenda Prescriby (2019–2023) og árið 2024 stofnaði ég Gervigreindarsetrið ásamt öðrum.
Að tala um gervigreind
Æ stærri hluti af starfi mínu fer fram utan kennslu og rannsókna. Ég nota gervigreind á hverjum degi og það kemur mér sífellt á óvart hversu hratt hún þróast. Ég skrifa greinar í blöð, held erindi fyrir fjölda fólks, allt frá hjúkrunarfræðingum til starfsfólks Seðlabankans, og mæti í útvarp og sjónvarp til að ræða hvað þetta þýðir fyrir Ísland. Lista yfir viðtöl og greinar er að finna á síðunni Miðlun.
Í október 2026 bjó ég til þáttaröðina Gæti gervigreindin grandað okkur? Um er að ræða sjö stuttmyndir sem fjalla um hvernig gervigreind gæti farið illa með okkur. Þær eru aðgengilegar á YouTube á íslensku og ensku og á TikTok. Ég skrifaði líka pistil um hvernig ég bjó þær til.
Bakgrunnur
Ég hóf rannsóknir vegna áhuga míns á stærðfræði og tölvunarfræði. Það leiddi mig út í taugavísindi þar sem ég spurði hvernig litlar rásir eininga sem líkjast taugafrumum byggja upp reiknigetu á við heilabörkinn. Ég á ekki von á að finna „hina dæmigerðu örrás“ (canonical microcircuit) á næstunni, en stærðfræðilegi grunnurinn sem ég lagði og þau vísindalegu vinnubrögð sem ég tileinkaði mér á þessum fyrstu árum fylgja mér enn og móta hvernig ég vinn að máltækni og gervigreind í dag. Lengi býr að fyrstu gerð.
Ferilskrá
Stutt ferilskrá (PDF) · Ítarleg ferilskrá með öllum greinum (PDF) · Skoða á síðunni. Ferilskráin er á ensku.
Fyrir fjölmiðla
Ég er alltaf opinn fyrir því að ræða við fjölmiðla um gervigreind og áhrif hennar á samfélagið, stór mállíkön, gervigreind í skólastarfi, áhættu og öryggi gervigreindar og máltækni fyrir íslensku. Fljótlegast er að senda mér tölvupóst á hafsteinne@hi.is. Fyrri viðtöl og greinar eru á síðunni Miðlun.
Stutt kynning
Hafsteinn Einarsson er dósent í tölvunarfræði, deildarforseti Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar Háskóla Íslands og sérfræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Rannsóknir hans snúa að máltækni fyrir íslensku, mati og öryggi gervigreindarkerfa og vélnámi í vísindum og læknisfræði.
Á ensku
Hafsteinn Einarsson is an associate professor of computer science and Head of the Faculty of Industrial Engineering, Mechanical Engineering and Computer Science at the University of Iceland, and a principal scientist at Amgen deCODE. His research covers language technology for Icelandic, the evaluation and safety of AI systems, and machine learning in science and medicine.
Sækja mynd (960 × 1280) (frjálst að nota með umfjöllun um mig).
Hafa samband
- Netfang · hafsteinne@hi.is
- ORCID · 0000-0001-5072-3678
- Google Scholar · síðan mín
- GitHub · @Haffi112
- X · @hafsteinn
- YouTube · rásin mín
- TikTok · @hafsteinneinarsso
- LinkedIn · síðan mín
- BoardGameGeek · spilasafnið mitt
- PGP · dreifilykill · fingrafar
3111 9177 9A70 1D7D C531 E99E 9B84 4AFD 0ADC F3C7