Fara beint í efnið

Kennsla

Námskeið sem ég kenni eða hef byggt upp við Háskóla Íslands. Yfir 300 nemendur sitja þau á hverju ári.

Gervigreind og forysta

Framhaldsnám · Kennt á íslensku

Námskeið í Executive MBA-námi við Háskóla Íslands um gervigreind fyrir stjórnendur. Þátttakendur kynnast því hvað gervigreindarkerfi nútímans geta og geta ekki, hvar gervigreind nýtist í daglegu starfi stjórnenda (gögn, ákvarðanataka, frammistaða og vellíðan starfsfólks og eigin þróun stjórnandans) og hvaða siðferðilegu spurningar vakna þegar gervigreind er tekin í notkun innan fyrirtækja. Í tímum er unnið beint með spunagreindartól. Árið 2025 kenndi ég námskeiðið með Sigrúnu Gunnarsdóttur, sem rannsakar þjónandi forystu, en einn árið 2026. Kennt á íslensku.

Kennt: 2025, 2026

Inngangur að djúpnámi

Framhaldsnám · Kennt á ensku

Inngangsnámskeið á meistarastigi um djúp tauganet: bakdreifingu, þjálfun og reglun líkana og högun sem notuð er fyrir myndir, hljóð og texta. Spunalíkön, gagnstæð líkön og runulíkön eru hluti af námsefninu og PyTorch er notað við alla útfærslu. Nemendur kynna grein eða eigið verkefni á sviðinu sem hluta af námsmatinu. Kennt á ensku.

Kennt: haust 2025

Lífsferill gervigreindarlausna

Framhaldsnám · Kennt á ensku

Meistaranámskeið um allan lífsferil gervigreindarkerfis í rekstri: söfnun og undirbúning gagna, val á breytum, þjálfun og mat líkana, innleiðingu, framsetningu sem þjónustu og vöktun og viðhald eftir að kerfið er komið í notkun. Misserið hverfist um þrjú stærri hópverkefni þar sem nemendahópar keppa um að smíða bestu lausnina.

Kennt: vor 2021, vor 2022, vor 2023, vor 2024, vor 2025, vor 2026

Máltækni (hluti af námskeiðinu Viðskiptagreind)

Framhaldsnám · Kennt á ensku

Tveggja vikna hluti um máltækni innan meistaranámskeiðsins Viðskiptagreind við Viðskiptafræðideild, þar sem Helga Ingimundardóttir er umsjónarkennari. Fjallað er um forvinnslu texta, greypingar, flokkun, nafnakennsl og notkun risamállíkana í starfi greinenda. Kennt á ensku.

Kennt: vor 2022, vor 2023, vor 2024

Risamállíkön í íslensku samhengi

Framhaldsnám · Kennt á íslensku

Meistaranámskeið á Hugvísindasviði þar sem spurt er hversu vel risamállíkön virka á íslensku og hvað hegðun þeirra segir okkur bæði um líkönin og mannlegt mál. Meðal efnis eru aðferðir til að meta málfærni risamállíkana á íslensku, áhættan sem fylgir útbreiddri notkun spjallmenna í litlum málsamfélögum (rangfærslur, bjögun og fordómar) og hvað frammistaða líkananna á ólíkum tungumálum gefur til kynna um það hvernig börn og vélar tileinka sér mál. Umsjónarkennari: Iris Edda Nowenstein. Kennt á íslensku.

Kennt: vor 2026

Greining reiknirita

Grunn- og framhaldsnám · Kennt á ensku

Hönnun og greining reiknirita, kennd sem brúarnámskeið milli BS- og MS-náms í tölvunarfræði. Fjallað er um tímaflækju, reiknirit fyrir röðun og leit, reiknirit á netum og fylkjareikninga og hefðbundnar hönnunaraðferðir: deila og drottna, gráðug reiknirit og kvika bestun. Námskeiðinu lýkur á grunnatriðum torleystra verkefna: NP-fullkomleika, nálgunarreikniritum og slembireikniritum. Kennt til skiptis með Steini Guðmundssyni og Páli Melsted. Kennt á ensku.

Kennt: vor 2021, vor 2023, vor 2025

Strjál stærðfræði fyrir tölvunarfræði

Grunnnám · Kennt á íslensku og ensku

Námskeið á fyrsta ári sem fer yfir þann grunn í strjálli stærðfræði sem byggt er á í öllu tölvunarfræðináminu: yrðinga- og umsagnarökfræði, mengjafræði og Boole-algebru, þrepun og endurkvæmni, talningu og einfalda greiningu reiknirita, vensl og framsetningu þeirra, tré og net og grunnatriði strengja, stöðuvéla og formlegra mállýsinga. Í hverjum árgangi eru 200–230 nemendur, bæði íslenskir og erlendir.

Kennt: haust 2020, haust 2021, haust 2022, haust 2023

Tölvur, stýrikerfi og stafrænt læsi

Grunnnám · Kennt á íslensku og ensku

Sjálfsnámsnámskeið í grunnnámi sem ég byggði upp árið 2020 að fyrirmynd „The Missing Semester of Your CS Education“ frá MIT. Fjallað er um uppbyggingu tölva, grunnatriði stýrikerfa og þá færni á skipanalínu og með verkfæri sem nemendur þurfa í gegnum allt námið. Námskeiðið er hannað bæði fyrir íslenska og erlenda nemendur sem fara í gegnum efnið á eigin hraða.